Flokkur: Uppskriftir
10.03.2009 18:19
Kínverskur heilsudrykkur
Ég á frábæra samstarfskonu sem er góð vinkona mín og henni er mjög annt um mig og heilsu mína. Þegar kvefið er alveg að fara með mig laumar hún að mér þessari uppskrift að kínverskum heilsudrykk sem á víst að geta læknað hvað sem er, eða svo er sagt:
- 2 msk rifin engiferrót
- safi úr 1/2-1 sítrónu
- 1/4-1/2 tsk cayenna pipar
- 1 lítri af soðnu vatni
Mæli með þessum töfradrykk, hann hjálpar mér!
14.12.2008 22:56
Uppáhaldssúpan mín - grænmetissúpa Sollu
- 1 msk kókosolía
- 2 laukar skornir í þunna strimlar
- 3 pressuð hvítlauksrif
- Ca 1/2 kg niðurskorið grænmeti, ég nota ákveðna stærð af skál sem passar vel en er ekki alveg viss um að það sé 1/2 kg. Best finnst mér að nota sætar kartöflur, hvítkál, rauðkál, blómkál, brokkolí, sveppi, gulrætur, papriku og ef ég er í þannig stuði set ég ólífur líka.
- 1 tsk sjávarsalt
- 1 tsk oregano
- 1 tsk basil
- 1/2 tsk timian
- 2 msk tómatmauk
- 1 ds tómatsúpa frá LaSelva
- 1 ds niðursoðnir tómatar (má líka sleppa LaSelva og setja 2 ds niðursoðna tómata í staðinn)
- 800-1000 ml vatn (fer eftir hversu mikið grænmeti ég set í súpuna)
- 3 gerlausir grænmetisteningar
- Hitið olíuna í potti og mýkið lauk og hvítlauk í pottinum.
- Bætið grænmetinu öllu út í og kryddið (ef þið eigið ferskar kryddjurtir er um að gera að nota þær frekar).
- Setjið tómatmaukið útí og blandið saman.
- Setjið síðan tómatsúpuna, niðursoðnu tómatana, vatn og grænmetiskraft útí og látið malla í hálftíma.
- Um að gera að smakka súpuna, oft bæti ég aðeins við af kryddi, sérstaklega basil og oregano.
Það er vissulega hægt að bæta út í til dæmis afgangi af kjúkling, kjúklingabaunum eða nýrnabaunum og bæta því við þegar súpan er búin að malla í 20 mínútur og láta sjóða með í 10 mínútur.
Ef maður er flottur á því er hægt að setja ferskt basil út á hjá þeim sem vilja, ristaðar furuhnetur og parmesanost eða bara venjulegan rifinn ost.
Vá, hver hefði trúað því fyrir tveimur til þremur árum að ég væri farin að gefa uppskriftir á vefnum. Ég sem hef forðast eldhús eins og heitan eldinn þangað til fyrir nokkrum mánuðum síðan. Það eiga sem sagt allir von ...
11.12.2008 22:38
Kókoskúlurnar yfirkeyrðu ofurmatvinnsluvélina
Nema hvað, ég var að búa til kókoskúlur að hætti Sollu og notaði í uppskriftina meðal annars döðlur frá Hagveri sem ég mixa saman í ofurmatvinnsluvélinni minni. Haldiði ekki að vélin hafi bara dáið í miðjum klíðum - og ég sem var rétt að byrja! Ég ætlaði ekki að fá hana aftur í gang en svo eftir dúk og disk, kaldan svita eftir bakinu og rosapanik, með báða símana í fanginu (ætlaði að fara að ræsa út björgunarlið) fékk ég hana sem betur fer aftur í gang. Í næstu uppskrift á eftir notaði ég sko döðlurnar hennar Sollu frá Himneskri hollustu - þær eru bæði bragðbetri, mýkri og heillavænlegri fyrir ofurvélina mína. En ég mæli eindregið með þessum kókoskúlum hennar Sollu og uppskriftin er þessi:
- 100 gr kókosmjöl
- 100 gr hnetur (ég notaði pekanhnetur í aðra og möndlur í hina)
- 30 gr. hreint kakóduft
- 250 gr döðlur
- 1-2 msk agavesíróp eða vatn (ég notaði bara agavesírópið)
Þessu skelli ég öllu í matvinnsluvélina og blanda þar til þetta hangir það vel saman að maður getur mótað litlar kúlur. Þeim velti ég svo upp úr kókosmjöli, má alveg velta upp úr kakódufti en mér finnst það ekki eins gott. Svo geymi ég þetta bara í frysti, má líka vera í ísskáp. Takk Solla fyrir frábært nammi!
01.12.2008 22:12
Smá leiðrétting á uppskriftinni
30.11.2008 23:21
Hollar skonsur
- 125 gr spelt (50 gróft og 75 fínt)
- 50 gr haframjöl
- 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/2 tsk sjávarsalt
- 1 dl rúsínur
- 2 eggjahvítur
- 2 1/2 dl sojamjólk
- 1/2 dl ólífuolía
Notaði svo aðferðina hennar Sollu sem er að blanda þurrefnum í eina skál og rest í aðra. Setja svo blauta dótið út í þurra og hræra stöðugt á meðan. Spreyjaði svo pönnu með vegetable oil og lét hana hitna og bjó til litlar skonsur. Þær urðu heldur stórar í upphafi en okkur Öddu sys reiknaðist til að úr þessu hefðu getað orðið 20 litlar skonsur. Adda hjálpaði mér sem sagt að búa til þessa uppskrift svo við eigum hana saman
Þetta er rosalega gott með osti og á tyllidögum er gott að setja hlynsíróp ofan á. Endilega látið mig vita ef þið prófið þetta.
25.09.2008 22:38
Uppfærð hafraklattauppskrift
Nokkrir lesendur síðunnar og stelpur á námskeiðinu mínu hafa prófað að baka hafraklattana en þeir hafa verið of harðir hjá þeim. Ég ákvað því að baka hafraklattana mína í gærkvöldi og mældi sérstaklega öll efnin sem ég setti útí. Komst að því að ég hef ekki alveg staðið mig í skráningu á innihaldslýsingunni þannig að hér birtist uppfærð hafraklattauppskrift.
Grunnurinn að uppskriftinni er frá Valdísi en ég breytti talsvert uppskriftinni aðallega því ég mundi ekki uppskriftina frá henni. Hafraklattarnir eru ágætir milli mála, veita orku og eru bara frekar hollir. Svo er ótrúlega einfalt að baka þá. Hér kemur uppskriftin:
6 dl haframjöl
3 eggjahvítur
1 msk agavesíróp
2 dl rúsínur
1 tsk kanill
1 dl kókosflögur
2 stóóórar msk af kotasælu (þeir sem þola ekki mjólkurafurðir geta sett 2 banana í staðinn)
1 banani eða 1 epli
Þessu skelli ég í ofurmatvinnsluvélina mína og mauka saman þangað til þetta er orðið vel blautt. Ég bý svo til litlar kúlur með lítilli ískúluskeið (húsráð frá litlu sys) og ýti svo aðeins ofan þá á bökunarplötu. Klattana baka ég í ofni við 150° í 60 mínútur.
Ég veit ég á ekki að segja frá því en ég bakaði klattana í gær og ákvað að gefa stelpunum á námskeiðinu smakk í morgun. Það er skemmst frá því að segja að ég steingleymdi að gefa þeim smakk (hafði samt fyrir því að koma með þá alveg inn í sal). Ég verð því að gjöra svo vel að baka aftur á sunnudagskvöldið og gefa þeim smakk á mánudagsmorguninn. Ef einhver ykkar les þetta þá endilega minnið mig á það
18.01.2008 13:14
Bústhádegi í vinnunni
Ég og ein mjög svo ágæt samstarfskona mín ákváðum fyrr í þessari viku að hafa bústhádegi á föstudag, sem sagt í dag, og bjóða samstarfsfólkinu upp á að bústa fyrir það hvers kyns gómsæti. Yfirmaður okkar tók auðvitað að sér að borga brúsann - allt gert til að starfsfólkinu líði betur
Við buðum upp á fjórar tegundir en endaði reyndar í þremur tegundum því spínatbomban var bara ekki góð, hún var hreint út sagt vond. Síðustu tvær blöndurnar voru hristar fram úr erminni með hinum og þessum afgöngum. Ég skal bara segja ykkur það að þetta sló svona rækilega í gegn og endalaus hamingja með þetta (alla vega að því er virtist). Óskað var eftir að þetta yrði gert í hverju hádegi á föstudegi en við samstarfskona mín erum búnar að ákveða að skora á tvo aðra starfsmenn að gera þetta að mánuði liðnum. Ekki það að okkur þótti þetta leiðinlegt, þvert á móti fengum við heilmikið út úr þessu, heldur er þetta ágætisleið til að hrista lið saman.
Ég get svo svarið fyrir það að krafturinn í samstarfsfólkinu er slíkur núna að það sitja allir og pikka og gera og græja og verða ábyggilega búnir með vinnudaginn um þrjúleytið í dag!
Jebb, þetta var gaman. Líka af því ég átti þarna eina uppskrift og svo voru tvær uppskriftir sem hvorug okkar hafði gert áður. Læt þessar uppskriftir fljóta með (þær voru álíka vinsælar en ég held samt að Majubomba hafi slegið algjörlega í gegn):
Majubomba
1 lítil dós hreint KEA skyr
1 wheetabix
½ banani
1 lúka af bláberjum (má nota hvaða ber sem er)
slurkur af safa (helst með gulrótum í)
Suðræn bomba
1 lítil dós hreint KEA skyr
1 sneið frosið mangó (meðalstórt)
1 lúka af ananas/1 sneið ananas
1-2 msk. kókosmjólk - má samt alveg vera 4 msk.
Hippahristingur
3 dl ab-mjólk/sojajógúrt
2 bananar
100 g ananas (ósætur í bitum)
flís af ferskri engiferrót (¼ cm) - má samt vera alveg heill sentimetri
¼ tsk. vanilluduft/-dropar
- 1
Eldra efni
- 2012
- Febrúar (1)
- 2011
- Október (1)
- September (3)
- Ágúst (4)
- Júlí (1)
- Apríl (1)
- 2010
- Október (3)
- September (4)
- Ágúst (7)
- Júlí (6)
- Júní (18)
- Maí (3)
- Mars (2)
- Janúar (2)
- 2009
- September (2)
- Ágúst (4)
- Júlí (6)
- Júní (7)
- Maí (9)
- Apríl (6)
- Mars (12)
- Febrúar (1)
- Janúar (4)
- 2008
- Desember (6)
- Nóvember (6)
- Október (6)
- September (9)
- Ágúst (9)
- Júlí (16)
- Júní (7)
- Maí (10)
- Apríl (17)
- Mars (17)
- Febrúar (5)
- Janúar (3)
- 2007
- Desember (7)
- Nóvember (5)
- Október (7)
- September (5)
- Ágúst (6)
- Júlí (7)
- Júní (7)
- Maí (12)
- Apríl (9)
- Mars (14)
- 2006
- Desember (1)
- Nóvember (2)
- Október (9)
- September (26)
- Ágúst (2)
- 2005
